Svar samdægurs
Þú átt ekki að þurfa að bíða í viku eftir verði. Við svörum sama dag á virkum dögum, líka þegar svarið er að við þurfum að athuga málið.
Pökkum er lítið fyrirtæki með stórt bakland. Þegar þú hringir svarar Geir eða Einar, ekkert skiptiborð og engar biðraðir. Á bak við okkur er net birgja í Evrópu og Asíu sem við höfum byggt upp árum saman.
Við höfum margra ára reynslu í hönnun, þróun og framleiðslu á umbúðum fyrir íslenskan matvælamarkað. Með sterkum tengslum við birgja og öfluga tæknilega þekkingu höfum við unnið náið með framleiðendum eins og Stjörnugrís, Bónus og Krónunni. Við sérsníðum lausnir sem ná jafnvægi milli vörumerkis, virkni og framleiðslu, hvort sem um er að ræða plastbakka, filmur, límmiða eða pappakassa.
Við þekkjum vélarnar sem standa í íslenskum matvælafyrirtækjum og leggjum ríka áherslu á að lausnirnar okkar virki hnökralaust með þeim. Filmur, bakkar og merkingar eru valdar með tilliti til Multivac-pökkunarvéla, Vemag-búnaðar og annarra algengra framleiðsluvéla.
Við vinnum með reyndum tækniaðilum sem þekkja búnaðinn og geta aðstoðað við uppsetningu, prófanir og fínstillingar. Ef eitthvað stoppar í línunni hjá þér er það okkar mál líka.

Þú átt ekki að þurfa að bíða í viku eftir verði. Við svörum sama dag á virkum dögum, líka þegar svarið er að við þurfum að athuga málið.
Hönnun, prentun, umbúðir og afhending á einum stað. Þú þarft ekki að samræma fjóra birgja og vona að allt passi saman í lokin.
Við geymum algengustu vörurnar hér heima. Þótt gámur tefjist í Rotterdam stoppar línan hjá þér ekki þess vegna.
Umbúðir sem líta vel út en virka ekki í Multivac-vélinni eru ónýtar. Við prófum og fínstillum áður en þú kaupir heilt bretti.
Það er enginn milliliður. Geir sér um sölu og umbúðaráðgjöf, Einar um hönnun og vöruþróun, og við tölum saman allan daginn hvort sem er.

Sala og umbúðaráðgjöf
Geir þekkir íslenska matvælamarkaðinn út og inn og finnur lausnina sem passar bæði vörunni og vélinni sem pakkar henni.

Hönnun og vöruþróun
Einar teiknar umbúðirnar, merkingarnar og markaðsefnið, allt frá fyrstu skissu að prentklárri skrá.
Þau pakka þessu saman með okkur














Hvort sem það er ein rúlla af límmiðum eða heil vörulína, þá byrjar þetta á sama stað. Þú hringir eða sendir línu og við svörum samdægurs.