Fara beint í efnið
Pökkum
Umbúðir fyrir fisk

Sjávarútvegur

Fiskurinn fer úr sjó í frystigeymslu og þaðan í gám sem er tvær vikur á leiðinni. Umbúðirnar þurfa að þola alla leiðina: raka, frost, stöflun og hitasveiflur. Við höfum pakkað fyrir íslenskan sjávarútveg árum saman og þekkjum bæði kassastærðirnar sem kaupendur erlendis vilja sjá og vélarnar sem eru í vinnslusalnum.

Lax settur í filmu í íslenskri fiskvinnslu
Sex flokkar fyrir fiskvinnslu

Umbúðir fyrir fiskvinnslu

Sex vöruflokkar sem ná yfir alla leiðina frá vinnslulínu í gám. Allt fæst óprentað eða sérprentað með þínu merki.

  • Hvítur frystikassi úr B-flute bylgjupappa

    Frystikassar

    Hvítir bylgjupappakassar úr B-flute fyrir frosnar sjávarafurðir. Staðalstærðir fyrir 5, 11 og 20 kg sem kaupendur erlendis þekkja, með hvítri yfirborðsáferð sem er tilbúin fyrir prentun.

    • B-flute bylgja sem heldur lögun í frosti
    • Hvít áferð, sérprentun í boði
    • Þola raka, kulda og stöflun í gámi
    • Staðlaðar stærðir fyrir 5, 11 og 20 kg
    5 kg
    390 × 190 × 155 mm, HB26b, B-flute
    11 kg
    589 × 242 × 170 mm
    20 kg
    579 × 376 × 170 mm
  • Glær vacumpoki úr PA/PE fyrir fiskafurðir

    Vacumpokar úr PA/PE

    Sterkir lofttæmipokar sem loka þétt og halda fiskinum ferskum alla leið. Fást bæði sléttir og rifflaðir eftir því hvort þú notar kammervél eða borðvél.

    • Multilayer PA/PE með súrefnisvörn
    • Sléttir og rifflaðir
    • Þola frost og suðu
    • Fimm stærðir á lager, sérstærðir í boði
    VPOK001
    250 × 400 mm, 80 µm
    VPOK003
    400 × 600 mm, 90 µm
    VPOK005
    300 × 600 mm, 120 µm
  • Rúlla af frostþolnum thermolímmiðum

    Frostþolnir límmiðar

    Thermolímmiðar með frostþolnu og vatnsheldu lími sem festast við kaldan og rakan kassa og losna ekki í frystigeymslu eða á sjó. Prentast án bleks í Zebra-prentara á línunni.

    • Frostþolið og vatnshelt lím
    • Direct thermal og thermal transfer
    • Fyrir lotunúmer, dagsetningar og strikamerki
    • Standast raka í frystigeymslu og gámi
    LÍM001
    75 × 90 mm, 800 stk á rúllu
    LÍM002
    90 × 150 mm, 400 stk á rúllu
  • Vélafilmur á rúllum fyrir Multivac-pökkunarvélar

    Vélafilmur fyrir Multivac

    Undir- og yfirfilmur skornar fyrir Multivac R125 og R126, þær vélar sem víðast eru í notkun í íslenskri fiskvinnslu. Við aðstoðum við uppsetningu, prófanir og fínstillingar með reyndum tækniaðilum.

    • Multivac R125 og R126
    • Hitamótunarfilma í botn, lokfilma yfir
    • Barrier-samsetningar með EVOH fyrir MAP
    • Skorið í þína breidd
    R126 undirfilma
    325 mm, 150 µm, glær, 500 m
    R126 yfirfilma
    307 mm, 100 µm, glær, 500 m
    R125 undirfilma
    463 mm, 180 µm, svört, 350 m
    R125 yfirfilma
    459 mm, 120 µm, glær, 650 m
  • Stök kælimerking fyrir frystigeymslu

    Kælimerkingar og deildamerkingar

    Merkingar sem sýna strax í hvaða rými er komið: frystivara við -18 °C, kælivara við 0 til 4 °C, snyrtivara og tollvara. Prentað á filmu sem þolir þrif og raka.

    • Frystivara -18 °C og kælivara 0 til 4 °C
    • Snyrtivara og tollvara
    • Filmuefni sem þolir þrif
    • Sérmerkingar eftir þínum deildum
  • Plastpoki fyrir fiskvinnslu

    Plastpokar, þekjur og arkir

    Grænir, bláir og glærir HDPE-pokar fyrir vinnslusalinn, ásamt stórsekkjum, plastþekjum yfir ker og arkir milli laga.

    • HDPE-pokar 630/200 × 650 mm, grænir, 0,045 mm
    • HDPE-pokar 410/125 × 510 mm, bláir, 20 µm
    • Stórsekkir 1300/550 × 2500 mm, 0,24 mm
    • Plastarkir 480 × 350 mm, bláar, 22 µm
Frá sjó í gám

Umbúðir fyrir fisk, alla leiðina

Umbúðir fyrir sjávarafurðir eru ekki bara kassi. Þær eru filma, poki, miði, kassi og strekkifilma sem verða öll að vinna saman í frosti, raka og flutningi. Við setjum alla keðjuna á eitt tilboð svo þú þurfir ekki að hringja í fjóra birgja.

  1. Á vinnslulínunni

    Flakið fer í hitamótaða filmu eða vacumpoka úr PA/PE. Við skerum vélafilmuna í rétta breidd fyrir Multivac R125 og R126 og aðstoðum við fínstillingar ef línan er ný eða hefur verið breytt.

  2. Í kassann

    Frystikassar úr B-flute bylgju í 5, 11 og 20 kg halda lögun í frosti og þola stöflun. Hvíta áferðin er tilbúin fyrir prentun ef kaupandinn erlendis vill sjá þitt merki á kassanum.

  3. Merkingin

    Frostþolnir límmiðar með vatnsheldu lími festast við kaldan og rakan kassa. Þeir prentast í Zebra-prentara á staðnum með lotunúmeri, dagsetningu, strikamerki og upprunalandi.

  4. Út í gám

    Brettið er strekkt með handstrekkifilmu eða í vél, plastþekja fer yfir og arkirnar milli laga. Umbúðirnar þurfa að þola tvær vikur á sjó og hitasveiflur á leiðinni.

Íslensk matvælavinnsla þar sem afurðir eru pakkaðar
Unnið fyrir

Þau treysta okkur fyrir umbúðunum

Fyrir Norðanfisk höfum við unnið spjöld og prentaða filmu utan um beykireyktan lax, með QR-kóða sem leiðir neytandann áfram. Sömu vinnubrögð liggja að baki hverju verkefni, hvort sem varan fer í íslenska hillu eða gám til útlanda.

  • Norðanfiskur, viðskiptavinur Pökkum
  • Eimskip, viðskiptavinur Pökkum
  • Laxdal, viðskiptavinur Pökkum
Frystikassinn í þrívídd

Hvíti kassinn sem fer í frystinn

Vaxhúðaður bylgjupappakassi með hvítri húðun að utan, gerður fyrir raka, kulda og staflaþunga. Hann snýst hér svo hlutföllin sjáist. Málin sníðum við að brettinu þínu og að því sem fer í kassann.

Fyrir hvaða iðnað

Hvar þetta er í notkun

Við þekkjum kröfurnar í hverri grein, hvort sem það er frost, raki, hitameðferð eða merkingarskylda.

  • Fiskvinnsla
  • Frystihús
  • Laxeldi
  • Reykhús
  • Útflutningur
  • Flutningar og gámaþjónusta
Af hverju Pökkum

Við sjáum um allt ferlið

  • Tilboð samdægurs

    Þú sendir fyrirspurn og færð svar sama dag. Við sitjum ekki á verðbeiðnum í viku.

  • Lager á Íslandi

    Algengustu stærðirnar liggja á lager hér heima, svo þú bíður ekki eftir gámi að utan.

  • Sérprentun í boði

    Við hönnum, gerum prófarkir og prentum þitt merki á kassa, poka, filmu og miða.

Næsta skref

Segðu okkur hvað þú ert að pakka

Sendu okkur stærðina, magnið og hvað fer í umbúðirnar. Við komum með tillögu, sýnishorn ef þú vilt og tilboð samdægurs. Þú þarft ekki að vita vörunúmerið, við finnum það.