Límmiðar
Fyrsta sýn skiptir öllu máli í matvöru. Límmiði er oft það fyrsta sem viðskiptavinurinn tekur eftir, áður en innihaldslýsingin er lesin eða varan smökkuð. Góður miði miðlar líka því sem skiptir máli: geymsluskilyrðum, lotunúmeri, dagsetningu og innihaldi. Hann getur borið QR-kóða sem leiðir viðskiptavininn á uppskrift, myndband eða upprunavottun.

Miðarnir okkar
Frá ómerktri thermorúllu í sjálfvirka línu yfir í hágæðamiða með cold foil. Allir fást í sérstærðum og með þínu lími.

Thermolímmiðar
Hitanæmir miðar sem henta vel fyrir sjálfvirkar merkingar á framleiðslulínu. Við bjóðum bæði direct thermal, sem prentast án bleks, og thermal transfer með filmu.
- Direct thermal og thermal transfer
- Prentast án bleks í Zebra og sambærilegum prenturum
- Fyrir dagsetningar, lotunúmer og strikamerki
- Frostþolið og vatnshelt lím í boði
- LÍM001
- 75 × 90 mm, 800 stk á rúllu
- LÍM002
- 90 × 150 mm, 400 stk á rúllu
- Stærri gerð
- 90 × 186 mm, sérpöntun

Merkimiðar á rúllu
Sérhannanlegir merkimiðar á rúllu fyrir vöruheiti, verð og upplýsingar. Snið og lím valið eftir umbúðunum sem miðinn fer á.
- 40 × 125 mm staðalstærð
- 500 stk á rúllu
- Vörunúmer LÍM003 til LÍM007
- Sérsnið og sérstærðir í boði

Prentaðir límmiðar
Hágæða miðar með sérprentun, gerðir fyrir vörumerki og hilluvöru. Prentaðir með offset, flexo eða rotogravúr, í háglans, möttu eða hálfmöttu.
- Offset, flexo og rotogravúr
- CMYK, PMS-litir eða sérlausnir
- Háglans, matt og hálfmatt yfirborð
- Fyrir matvæli, snyrtivörur og drykki

Glanslímmiðar
Glansandi yfirborð sem dregur athygli að vörunni og gefur faglegt útlit. Fást í ýmsum stærðum, lögunum og áferðum, allt frá litlum kringlóttum miðum upp í stóra sérsniðna límmiða.
- Kringlóttir, ferhyrndir og sérsniðnir
- Glansandi yfirborð
- Fyrir matvöru, drykki og gjafapakkningar
- Lítil upplög í boði

Plast- og filmulímmiðar
Endingargóðir miðar úr plastfilmu (PP, PE og PET) sem henta fyrir kæli- og frystivöru, snyrtivörur og erfiðar aðstæður. Rakavarnir, slitsterkir og með miklum límstyrk.
- PP-, PE- og PET-filma
- Rakavarnir og slitsterkir
- Glans eða matt, glær eða hvítur grunnur
- Algengasta valið þar sem álag er mikið

Frost- og rakaþolnir miðar
Miðar með frostþolnu lími sem festast við kalt og rakt yfirborð og losna ekki í frystigeymslu eða útflutningi.
- Frostþolið lím fyrir kalda vöru
- Halda í raka og bleytu
- Fyrir frystikassa, öskjur og poka
- Prentanlegir á staðnum
- Sérlausn

Framleitt eftir máli fyrir hverja pöntun
Séráferð og yfirborð
Miðar með sérstökum yfirborðseiginleikum: metallic-efni, cold foil, spot varnish, cast & cure og UV-þrykk. Fyrir vörumerki þar sem sýnileiki í hillu skiptir máli.
- Metallic og cold foil
- Spot varnish og cast & cure
- UV-þrykk og áferðarfilma
- Fyrir vín, konfekt, drykki og snyrtivörur
Hvar þetta er í notkun
Við þekkjum kröfurnar í hverri grein, hvort sem það er frost, raki, hitameðferð eða merkingarskylda.
- Kjötvinnsla
- Fiskvinnsla
- Frysti- og kæligeymslur
- Flutningar
- Drykkjarvörur
- Snyrtivörur
Við sjáum um allt ferlið
Tilboð samdægurs
Þú sendir fyrirspurn og færð svar sama dag. Við sitjum ekki á verðbeiðnum í viku.
Lager á Íslandi
Algengustu stærðirnar liggja á lager hér heima, svo þú bíður ekki eftir gámi að utan.
Sérprentun í boði
Við hönnum, gerum prófarkir og prentum þitt merki á kassa, poka, filmu og miða.
Aðrir flokkar sem eiga við
Fæstir kaupa bara eitt. Kassinn þarf miða, bakkinn þarf filmu og vinnslusalurinn þarf hanska. Við setjum þetta allt á sama tilboð.

Filmur
Hitamótunarfilmur, yfirfilmur, prentaðar filmur og barrier-filmur með EVOH fyrir vakúm og MAP.

Pappakassar
Brettakassar, neytendakassar, frystikassar og kassar með glugga úr ein- og tvílaga bylgjupappa.

Sjávarútvegur
Frystikassar, vacumpokar, frostþolnir límmiðar og vélafilmur fyrir fiskvinnslu og útflutning.
Segðu okkur hvað þú ert að pakka
Sendu okkur stærðina, magnið og hvað fer í umbúðirnar. Við komum með tillögu, sýnishorn ef þú vilt og tilboð samdægurs. Þú þarft ekki að vita vörunúmerið, við finnum það.