Við setjumst yfir þetta
Þú segir okkur frá vörunni, markhópnum og því sem þig langar að ná fram. Við spyrjum út í vélarnar, geymsluþolið og hilluna sem varan endar í.
Við gerum tvennt og gerum það vel: hönnum umbúðirnar og byggjum vörumerkin sem standa á þeim. Sama fólkið teiknar útlitið og útvegar umbúðirnar, svo ekkert týnist á milli hönnuðar og prentsmiðju.

Við sérhæfum okkur í
Umbúðirnar eru fyrsta samtal vörunnar við kaupandann. Við teiknum útlitið á bakkann, pokann, kassann og filmuna, göngum frá prentskránum og fylgjum þeim alla leið í gegnum prentun. Þú færð eitt verk í hendurnar, ekki fjögur.

Sterkt vörumerki lætur vöruna þekkjast í hillunni áður en nokkur les textann. Við byggjum merkið, litina og letrið og setjum svo reglurnar sem halda útlitinu samræmdu yfir heila vörulínu, hvort sem hún telur þrjár vörur eða þrjátíu.

Merki sem við höfum teiknað





Bakkar, pokar, kassar og merkingar sem við höfum hannað og framleitt fyrir íslensk vörumerki.




Þú talar við sama fólkið allan tímann. Engir milliliðir og engin bið eftir svari.
Þú segir okkur frá vörunni, markhópnum og því sem þig langar að ná fram. Við spyrjum út í vélarnar, geymsluþolið og hilluna sem varan endar í.
Við teiknum tillögur og sýnum þær á raunverulegum umbúðum, ekki bara á flötum skjá. Þú velur og við fínpússum.
Við göngum frá prentskrám, stansteikningum og litaprófum og sendum sýnishorn, svo ekkert komi á óvart þegar framleiðslan fer af stað.
Umbúðirnar eru framleiddar, merkingarnar prentaðar og varan komin á lager hjá þér áður en hún fer í sölu.
Sendu okkur línu um vöruna og við komum með tillögur, ráðgjöf og tilboð í hönnun og framleiðslu.